Fréttir frá Köben

Svalt...

11.03.2009 13:43:35 / Unnur

Smádýraæfingar

jæja þá eru smádýraæfingarnar búnar . Voru bara alveg ágætar.
Fengum að æfa okkur að sprauta, setja sondu og æðalegg í dauð dýr og í plastslöngu með ávaxtasafa í hehe.
Svo lærðum við fyrstu hjálp fyrir dýr, mjög nytsamlegt allt saman þó ég sé ekki alveg sammála dönunum um hvar mörkin skulu dregin hvað meðhöndlun varðar en það er bara ég og best að vera ekkert að tjá sig nánar um það á netinu;)
Í dag voru svo lifandi dýr, hundar og kettir, sem við máttum æfa okkur að halda á ýmsan hátt svo þau séu alveg föst og hægt að meðhöndla þau. Hundarnir gengur fínt en kettirnir verr, hjá mer allavega....æfi mig þegar ég kem heim. Nóg af köttum til að æfa sig á þar.
En eftir þessa 3 daga sé eg enþá betur hvað ég lærði rosalega mikið í sumar í vinnunni minni, vissi nú alveg að ég lærði eitthvað en það kemur betur og betur í ljós hversu mikið það var sem er bara jákvætt.

Annars er lítið að frétta héðan nema jú ég fékk pakka frá íslandi og ofsalega ánægð með hann!! alltaf jafn spennandi hehe

bestu kveðjur úr DK
Unnur


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.02.2009 14:02:06 / Unnur

Mikið stend ég mig vel hehe

Styttra milli blogga núna en síðast.

>

Skólinn er komin á fullt...litill skóli svosem nema í þessari viku en nóg að lesa einsog mér datt í hug;)

Í þessari viku var ég í verklegum æfingum með stór húsdýr sem kom mjög skemmtilega á óvart! Hélt að þetta yrði frekar leiðinlegt og mikill grunnur og mjög stífar reglur og að ég myndi ekki sjá neitt því allir væru að troðast í alltof stórum hóp EN það var alls ekki þannig!!!! Gott að gera sér engar vonir því þá verður maður svo glaður þegar þetta fer ekki þannig;)

En allavega þetta voru 5 morgnar sem við vorum á stórdýraspítalanum, sem er btw rosalega flottur! Fyrsta daginn vorum við að dúlla okkur í hestunum, læra að beisla, setja múl, lyfta löppum ofl. Það kom svosem ekki mikið nýtt þar en jújú þetta voru stórir hestar. Svo áttum við að meta fótastöðu sem var mjög gaman, hafði aldrei pælt svakalega í því svo það var mjög gaman.

Á þrið. Fórum vorum við að læra að rífa undan og tálga hófa, hef svosem rifið undan áður en aldrei tálgað hóf sem ég fatta ekki alveg afhverju(trúlega því ég er svo mikil dekurdós) og svo skoðuðum við allskonar skeifnagerðir.

Á mið fórum við svo á beljuveiðar sem var mjög áhugavert en ég dáðist nú samt af bekkjarsystrum mínum sem gerðu sitt allra besta þó þær hefðu aldrei komið nálægt beljum áður. Lærðum líka að taka upp lappirnar á þeim og fella þær.

Á fim var það svo klaufskurður sem er eitthvað sem ég mun aldrei vinna við held ég, alltof erfitt...og lærðum líka að líma klaufskó á;)

Í dag vorum við svo að þreifa liði, liðbönd, bein, vöðva og fleira;)

Skemmtileg en frekar erfið vika og heilinn alveg útbrunninn eftir morgna á spítalanum , stundum fyrirlestra eftir hádegi og svo lestur.....en útbrunnin heili kemur sér allsekki vel fyrir lestrarhelgina sem er framundan........ hehe

>

En þetta er svo langt orðið að aðrar fréttir sem eru litlar bíða betri tíma;)

>

Kveðja úr Köben með smá snjó hehe


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.01.2009 09:39:41 / Unnur

Nýtt blogg

Ætil að sé ekki komið að því að blogga smá aftur....

>

Margt gerst síðan síðast.

>

Það skemmtilegasta var íslandsferðin um jólin. Vorum heila 17 daga á íslandi sem var alveg frábært, fengum mömmumat, þurftum ekki að gera NEITT sjálf, bara leti, jól og éta. Það sem er samt smá pirrandi við heimferð um jólin er að maður nær ekki að hitta vini sína mikið, þetta er svo mikil fjölskylduhátíð (sem er fínt) að  það eru allir uppteknir með sín jólaboð og fáir lausir dagar. Náði samt einu góðu balli með Helenu og Árný og tveimur spilakvöldum sem var rosa gaman;)

>

Komum út til DK þann 5 jan og ég brunaði beint í skólann í röntgentíma, ansi þreyttur tími en líka frekar skemmtilegur. Við erum nebblega svo  skemmtileg við fólkið okkar þegar við erum að fljúga á milli að við veljum alltaf bestu flugtímana; komum heim um miðja nótt og förum svo af stað á flugvöllinn um 4 á nóttunni sem er rosalega hentugt fyrir fólk sem þarf að sækja og skutla hehe . og lætur mann vera þreyttan allan komudaginn......held við verðum að reyna að breyta þessu....

>

Prófin mín komu og fóru einsog venjulega. Var í prófum 22 og 23 jan, gekk ekkert svo vel í fyrra prófinu, frekar svínslegt krossapróf en það seinna gekk vel, mér leið eiginlega bara einsog ég væri komin í fjölbraut aftur, góð tilfinning. Vona bara að eg hafi ekki misskilið prófið svona svakalega og gert allt vitlaust........

>

Núna er svo komið vikufrí, fer ekki aftur í skólann fyrr en 2 feb, frekar gott;) er bara að lesa upp það sem ég náði ekki á síðustu önn og finna heimildir í BSc ritgerðina, annars bara afslöppun sem er ofsalega gott.

>

Jæja þá er komið smá blogg , sérstaklega fyrir Helenu hehe.

>

Reyni að láta líða styttra í næsta blogg, ætti ekki að vera erfitt þar sem skólinn á næstu önn er bara 3 daga í viku (en ætli það komi ekki í hausinn á manni með svaka lestri, þar er aldrei neitt svona kósí í þessum skóla hehe)

>

Unnur í orlofi


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2008 18:21:37 / Unnur

Síðasti mánuður

Langt síðan síðast!! Hefur bara verið mikið að gera og skemmtilegar heimsóknir sem hafa tekið tímann frá mér hehe

>

En ef ég byrja því þegar Edda og Gummi komu í heimsókn. Þau komu á laugardegi dauðþreytt eftir ferðalagið og með hjólalausatösku sem þurfti að fórna sér fyrir góðan málsstað þ.e. að ná lestinni. Fórum í smá göngutúr þann daginn og borðuðum svo rosalega gott lambalæri um kvöldið þó svo að það hafi verið í seinna lagi þar sem Davíð var akkurat að vinna þessa helgi. Þau komum nú með ýmislegt annað en lærið einsog t.d. kótelettur, kerti, blöð, nammi, viskastykki, bréf að heiman og ýmislegt fleira, ég er svo ofdekruð að gestirnir hafa aldrei pláss fyrir sitt eigið dót heldur fylla töskurnar af dóti handa okkur. Annars áttum við bara yndælis helgi saman og alltaf gaman að fá gesti.

Þau fóru svo heim á mánudegi.

>

Fimmtudaginn eftir það voru 2 próf sama daginn skil ekki hvernig svona getur gerst hjá Dananum þar sem allt er skipulagt í ræmur en ætli skipulagið hafi ekki bara verið of mikið í þetta skipti. Þetta var nú samt ekkert svo slæmt og auk þess sparaði þetta eina hjólaferð í skólann;) Laugardaginn eftir þetta var svo síðasta prófið og það var ekki nema 18 tockticker>BLStockticker>! Reyndar voru fyrstu 5 eða 6 bara til að lesa en það er sama það tók tímann sinn! Og i þessa 4 tíma sem prófið var stoppaði penninn ekki og samt rétt náði ég að klára og það gerðist meira að segja líka í öðru prófinu á fimmtudeginum! Þetta hefur aldrei komið fyrir mig áður að vera svona tæp á tíma og það er sko ekkert fyrir mig, stefni á að láta þetta ekki koma fyrir aftur! En reyndar var enginn sem fór út fyrr svo kanski er þetta bara það sem koma skal, hver veit.

>

Á sunnudeginum fór ég svo ásamt 5 öðrum úr bekknum útá Jótland í praktik. Okkur var dreift á dýralæknaþjónustur á suður jótlandi við landamæri þýskalands og danmerkur. Við bjuggum hvert hjá sínum dýralækni og fórum svo með þeim í vinnuna. Þetta var bara val en eykur möguleikana á að komast inná brautina sem maður helst vill. Ég var rosalega heppin með fjöldkyldu; dýralæknahjón með 2 litla stráka, einn klikkaðan hund og fullt af kisum(þær voru samt úti). Þau bjuggu úti sveit en áttu ekki nein önnur dýr en hundinn og kettina. Þetta snérist mest um kúabú svo þetta var nú ekkert svakalega mikið annað en ég hef séð áður en ég fékk að sjá fullt af fjósum og svo einn keisaraskurð ;) Mér fannst skemmtilegast að sjá hvað það eru margir ungir bændur sem eru að byggja risa fjós þarna og með rosalega mikinn metnað, allt fínt og flott og áhuginn skín af þeim, varð pínu abbó .... Fékk svosem ekki að gera neitt brjálað mikið en einn dýralæknirinn treysti mér þó til að sprauta uppí spena og síðasta daginn fékk ég að stinga eina hehe Pabbi er aðeins meira afslappaður með þetta leyfir manni að sprauta ef maður vill . En dýralæknarnir voru mjög þolinmóðir og útskýrðu allt sem maður spurði um.

>

Kom heim á Fimmtudeginum (fyrir rúmrí viku) um 10 leytið og svo lendi mamma kl 12! Það var rosalega gaman að fá hana í heimsókn og í fyrsta skiptið sem hún kemur í íbúðina okkar. Við hjóluðum um alla kaupmannahöfn og skoðuðum ýmislegt. Mamma stóð sig mjög vel á hjólinu og var mjög litið dinglað á hana og enginn stoppaði til að skamma okkur;) Hún kom auðvitað með fulla tösku af dóti til okkar, líka frá tengdó, enn og aftur sannast hvað maður er dekraður. En þó enginn hafi skipt sér af hjólamennskunni hennar mömmu þá slapp hún ekki alveg við pirraða dani; hún fór ein í búðina og þar fannst einni konunni nauðsynlegt að kenna henni hvernig maður notar færibandið við kassan og skiljaradótið sem maður notar þar. En það var svakalega gott að fá m0mmu í heimsókn, hún eldaði handa okkur og var sjúk í að vaska upp og svona mömmuhluti sem manni vantar svo oft;)

>

En núna í þessari viku byrjaði ný önn í skólanum, allt mjög spennandi fög fyrir utan að bókakostnaðurinn er 250.000 ísl krónur, en það kaupi ég nú hægt og rólega;) Við byrjuðum s.s. í aðferðarfræði og faraldsfræði sem eru bæði litil fög og próf í janúar. Byrjuðum líka í lyfjafræði og grunn verklegu fagi sem eru bæði risafög með mikið af bókum og próf i ap/mai og þá tekur við BS ritgerðin, uff hvað þetta líður hratt!

>

Bara ein einkunn komin og það var B semsagt staðist, hinar eru enn ókomnar.

>

En að lokum þá mega þeir sem fá jólagjöf frá mér búasig undir heimagerða eða mjög ódýra ( ef ekki verður tími fyrir heimagerða) jólagjöf þetta árið.

>

Og til að auðvelda valið fyrir þá sem vilja gefa mér /okkur gjöf þá er hér listi sem auðveldar kanski leitina (ég persónulega þoli ekki að kaupa eitthvað sem eg veit ekkert hvað ætti að vera hehe):

  • Plokkun og litun gjafabréf
  • Dollur fyrir hveiti, sykur og þessháttar, hata pokana um allt
  • Púða í sófann
  • Kringlóttann kökudisk
  • Grey´s sería 3
  • Bodylotion
  • Bodyskrúbb
  • Góða íslenska bók
  • Mixara
  • Hangi eyrnalokka
  • Stóran spegil eða spegil á baðið
  • Mrs og mr spilið

Veit vel að þetta er ekki allt ferðatöskuhæft og ekki allt raunhæft sem jólagjöf en á maður ekki alltaf að skrifa allt sem hugurinn girnist og hver veit nema sveinki gamli muni eftir manni heheh.

>

Bestu kveðjur úr mömmulausri köben :(hehe


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 16:38:39 / Unnur

hitt og þetta

Well...... nenni nú ekki að segja mikið um þessa kreppu sem stormar á íslandi núna og reyndar í öllum heiminum. ‘Ilendingar urðu annaðhvort verst úti eða eru duglegastir að kvarta og koma sér í heimsfréttirnar... ætli það sé ekki samt bara þetta sem einkenni íslendinga að þurfa alltaf að vera bestir í öllu líka kreppum! En þó eg hafi ekki neitt vit a því sem er að gerast þá held eg að þetta sé að hluta til sjálfskapað víti sem ísl komu sér í með því að vilja alltaf eiga allt strax og ekki bara eitthvað melló dæmi heldur það nýjasta flottasta og dýrasta.... því miður hef ég líka litast af þessu og vil alltaf eitthvað nýtt og flott en er sem betur fer ekki búin að fá mér stóruhlutina ennþá hehehe. En jú það sem þessi kreppa kemur mér við er að millifærslur ertu eitthvað stirðar milli landa og það gæti skapað vandamál næstu mánaðarmót þegar bókakaupin miklu gerast... annars hefur þetta ekki enn sett strik í reikninginn hjá okkur og  þá er best að sleppa því að hafa áhyggjur strax.

>

En að öðru....... Dagarnir ganga sinn vana gang hér, haustið að koma hægt og rólega svolítið rok öðruhverju sem fær lærin til að taka á í hjólaferðunum og laufin til að skutlast af trjánum en ekki meira rok en það að laufin eru í hrúgum undir trjánum. Pabba finnst þetta nú ekki kallast haust og það er það kanski ekki miðað við ísl haustið en engu að síður sjokk fyrir mig þar sem nú er úlpan orðin hluti af daglega lífinu en vetlingar og húfa eru enn í skápnum.

>

Skólinn er búinn að vera einstaklega skrítinn þessa önnina, byrjaði óskaplega normal með miklum lestri og svoleiðis en svo breyttist þetta; bara mikil viðvera í skólanum en mjög takmörkuð heimavinna, gott en mjög stressandi finnst mér, finnst einhvern veginn einsog eg se að svíkjast um....

>

Í þessari viku er haustfriið okkar góða  en það er nu ekki mikið frí, held eg hafi ekki eytt svona miklum tíma í að læra frá því síðasta vor... undirbúningur fyrir prófin um mánaðarmótin í fullum gangi. Hjóla galvösk til Sonju á morgnanna og lærum saman fram að kvöldmat og þá er heilinn alveg búinn á því. Var að koma heim núna rétt aðan og held barasta að eg verði að fara að skella mer í að elda, ekki flókin eldamennska þar sem menu-inn samanstendur af afskaplega einföldum pastarétt með hvítlauksbrauði, en eldamennska engu að síður ;)

>

Og ju gleymdi að segja að Edda systir og Gummi kærastinn hennar koma eftir rúma viku og ég er orðin mega spenntJ alltaf svo gaman að fá gesti

>

Jæja bestu kveðjur heim í kreppuna, ekki gleyma ykkur alveg yfir henni, þetta reddast og það mun enginn deyja úr kreppunni einni og sér hehehe


» 8 hafa sagt sína skoðun

02.10.2008 19:07:44 / Unnur

klukk, þú ertann

Fjögur störf sem ég hef unnið við um ævina:
1. SS á hvolsvelli
2. HP kökugerð
3. Þjónn a Hótel Geysi
4. Símsvari og aðstoðarstelpa á DÝSU

Fjórir staðir sem ég hef búið á um ævina:
1. Litlu-Reykir
2. Hvanneyri
3. Kaupmannahöfn
4. selfoss

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
1. Big daddy
2. Shrek
3. Shrek 2
4. ?

Fjórir sjónvarpsþættir í uppáhaldi:
1. Greys anatomy
2. Dagvaktin
3. Friends
4. House

Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:

1. sjálfstætt fólk er sú eina held eg


Matur sem er í uppáhaldi:
1. fiskrétturinnhennar mömmu
2. kótelettur
3. tortillas
4. Slátur

Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (fyrir utan bloggsíður):
1. facebook.com
2. mbl.is
3. campusnet.kvl.dk
4. kbbanki.is (gengistékk)

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Spánn
2. þýskaland
3. svíþjóð
4. akureyri

Fjórir staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
1. Með fjölskyldunni heima á Íslandi
2. á hestbaki
3. einhverstaðar á framandi slóðum, afríka eða suður amaerika
4. sofnuð í rúminu mínu

Fjórir bloggarar sem ég klukka:
1. Stella systir
2. Amma davíðs
3.
4.

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 12:31:30 / Unnur

ýmislegt

Uff eg held að eg se bara einn lélegasti bloggari sem eg veit um eða þá bara að það gerist svona litið hjá mer......

Hef svosem ekkert svakalega mikið að segja nema skólinn er svakalega þægilegur þessa dagana, bara verkefni fyrir hádegi og ekkert að lesa eftir það.....of gott til að endast enda er þetta síðasta vikan af þessum notalegheitum.

Í næstu viku eigum við að fá lifandi rottu sem búið er að setja eitur í, setja hana i deyfingarklefa (sem þýðir að við þurfum að snerta hana lifandi sem eg er ekki til í! Jú eg er að læra dýralækninn ef þið ætlið að koma með einhver svoleiðis komment ég bara ætla mer ekki að leggja það í vana minn að faðma rottur!) og sker svo hausinn af henni meðan hun er enn á lífi! Er strax byrjuð að herða mig upp fyrir þetta ( enn og aftur ju eg er að læra dýralækninn en manni ma nu alveg finnast sumt vibbalegt)

En ja talandi um rottur þá hittum við Davíð eitt stykki svoleiðis í gær þegar við vorum að hjóla, hún var bara að spranga um þarna á hjólastígnum og var sko ekkert að flýta ser í burtu, held henni hafi bara langað að fá far með okkur.....

Svo ég haldi áfram með hjólasögurnar þá mætti eg dauðri önd á leið minni í skólann sem leiddi til þess að það varð hálfgerð umferðarteppa á stignum því allir þurftu að sveigja framhjá.

Eftir þessi 2ár í DK hef ég komist að því að það er algerlega ómögulegt að ná upp hjólamenningu einsog hér á íslandi. Þó svo að það yrðu lagðir alveg fyrirmyndar stígar og allir í umferðinni yrðu yfir sig tillitssamir (sem mun reyndar aldrei gerast) þá er að alltaf fjandans rokið og rigningin og jú snjórinn sem þvælist fyrir. Hér er mjög sjaldan mikil rigning þó svo að eg hafi lenti í mega skúr um daginn og var bara á peysunni.... og rokið er nú varla til að tala um... nema eistaka sinnum einsog um daginn þegar ég var við það að gefast upp á brúnni og það eina sem kom mér upp hana var þrjóskan og óttin við að glansgellan fyrir aftan mig myndi ná mér! Á íslandi væru dagarnir án snjós, rigningar eða roks yfir vetrartímann trúlega mjög fáir og sjaldan gaman að hjóla þó svo það væri hægt með fullt af góðum fötum og þrjosku.....

Jæja svona í restina ætla eg að deila með ykkur sma ljóskumomenti...: það var þannig á föstudaginn að við fórum útí búðina á móti á hjólinu mínu, skiluðum dósum og fórum svo í pósthúsið og sóttum pakka frá tengdó. Ég var yfir mig spennt yfir pakkanum og rauk heim eins hratt og eg gat til að opna pakkann og juju var svaka glöð yfir innihaldinu, takk fyrir okkur! En svo á laugardag ætlum við að fara að versla og Davíð spyr þegar við komum niður “hvar er hjólið þitt unnur” ég segi að það se bara þarna i grindinni og hann alveg þverneitar fyrir það og eftir sma reiðikast sætti ég mig við að það se bara búið að stala fjandans hjólinu sem er ekkert óalgengt hér. En neinei það var ekkert búið að stela því ljóskan ég hafði bara gleymt því í búðinni í spenningskastinu yfir pakkanum......

Bestu kveðjur heim á ísland

>

Ps. Búin að kaupa jólamiðann heim, komum 18 des.


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 13:58:01 / Unnur

bilad lyklabord eda eitthvad

komin hlegi enn a ny og naestum buin lika.
vikan bara buin ad vera fin en frekar mikid ad gera. Samt mjog gaman i skolanum finnst mer, naeringerfraedin er alveg a minu ahugasvidi sem betur fer;)
Gummi kaerastinn hennar eddu systir kom hingad a fimmtudag og var tar til i gaer hja okkur. Mjog gaman ad hitta hann og david hafdi felaga til ad horfa a fotbolta og drekka sma bjor;) Hann for svo aftur i skolann i gaer en kemur allavega aftur tegar edda kemur i oktober;)
Forum i afmaeli til Ebbu i gaer i Albertslund og tad var bara mjog gaman, hittum fullt af folki.
Nenni ekki ad skrifa meira tar sem lyklabordid a tolvunni minni akvad ad breytast aftur i ensku og eg get ekki breytt til baka......tarf ad finna einhvern sem kann a svona tolvudot.....


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.09.2008 17:47:32 / Unnur

uppbótarblogg

jæja vona að þetta gangi núna....síðan búin að vera með flensu síðustu daga og ekkert hægt að setja inn... þetta átti að koma inn á sunnudagsmorgun:

 

Ætli það sé ekki best að byrja á byrjuninni.... prófin kláruðust á laugardegi og ég náði þeim öllum. Flugum svo heim í sumarið á sunnudagskvöldið.

Sumarið var frábært, blaut útilega um versló, nokkrar ferðir á 800 bar, fiskidagurinn mikli á Dalvík, margir útreiðartúrar og margt fleira sem eg bara man ekki í augnablikinu. Og ekki má gleyma vinnunni minni sem var ótrúlega þægileg og skemmtileg, var að vinna á Dýraspítalanum Stuðlum og það var bara frá 9 til 18 og alltaf frí um helgar!!!

Núna erum við svo komin aftur til Danmerkur og það í algert sumarveður! Vorum í Bakken í gær og það var 20 stiga hiti sem olli því að ég brenndist á öxlunum. Það er reyndar búið að rigna einn dag og það ekkert smá! Regnfötin frá tengdó fengu að njóta sín þann daginn.

Skólinn byrjaði alls ekki rólega þetta árið....fyrirlestrar allan daginn. Ágætis fög samt, næringarfræði (reikna út fóðureiningar og næringarinnihald), eiturefnafræði og matvælaeftirlit. Lýst bara vel á þetta nema öll hópverkefnin sem fylgja þessu......

En jæja nú ætla ég að klára að undirbúa sauma-/kjaftaklúbbinn sem verður hérna á eftir;)


 og fram hald skrifað í dag:
klúbburinn tókst vel og mikið kjaftað, allt frá skólatengdu efni útí of klúr málefni fyrir netið...
skólinn er svo bara tekinn við að venju
fórum á Rorrengård í dag sem er svona skóla bóndabær og áttum að fræðast um dýrategundirnar og fóðrið þeirra....hljómaði vel svona á blaði en uff hvað þetta var leiðinlegt!!!! Það var sko alveg frá grunni! t.d. " hestar, kýr og kindur eru jurtaætur og þær borða gras að mestuleiti, grasið sjáið þið hér (bent á grasið)" og " beljur eru mest veikar fyrir öllu áreiti rétt eftir burð" og svo fram eftir götunum.... juju það var svosem ágætt að fá sma vitneskju um fóður hænsna en samt var það svo yfirborðskennt að ég held að hænsnabóndi myndi bara hlæja framan í mig ef ég færi að miðla þeirri visku sem ég fékk þarna.....
en það var nu samt skárra en að sitja á skólabekknum:)

en jæja lesa sma!


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 19:21:10 / Unnur

Danmörk enn og aftur!

jæja þá erum við komin aftur til DK! Marg skemmtilegt brallað í sumar og kem með pistil um það seinna...
skólinn byrjaður á FULLU trukki og er í skólanum 8 til 5 alla daga nema föstudaga, í fyrirlestrum og bíða 50-100 síður spenntar eftir að vera lesnar í ræmur þegar ég kem heim svo eg er ekki búin að gera neitt annað en að læra og lesa.
Það er einmitt ástæðan fyrir þvið að ég ætla bara að láta vita af mér núna og blogga svo betur á sunnudag eða laugardag ef einhver kíkir enþá hérna inn;)

Unnur sem er enn að komast í lestrar og skrifform....


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.06.2008 18:11:08 / Unnur

Prófin búin og.....

við komum heim á morgun!!!!!

Hlakka rosalega til að koma heim og hitta alla!!!!

SJÁUMST:haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 17:40:08 / Unnur

of gott veður....

......til að blogga og til að læra!!!!
búið að vera 25 ca i 2 eða 3 vikur núna og bara búið að rigna 2 daga i 5 vikur.....komin með nóg í bili af þessum hita serstaklega þar sem maður getur ekki notið hans almennilega fyrir lærdómi....jebb það eru að koma prof!! enn einu sinni.....en það góða við það er að þá er líka stutt í heimkomu! jibbí!!! hlakka svo til að koma heim og ekki kafna úr hita! og ekki þurfa að læra (vonandi)
en annars er svosem allt gott að frétta héðan
nenni ekki meir í bili....
en já hlakka til að sjá alla 23 júni;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

21.05.2008 19:33:37 / Unnur

.......

 

Langt síðan síðast........ en það eru semsagt búnir að vera gestir nánast allan mai hér í DK, þó ekki allan tíman hér hjá okkur.

Fyrsti hópurinn kom 4 mai og stoppaði sma hjá okkur og fór svo á jótland, næsti hópur kom 6 mai og fór beint á jótland og við fórum svo á eftir þeim öllum þann 8 mai. Þetta var nánsast öll fjölskyldan hans davíðs og var tilgangur ferðarinnar að skoða nýjasta meðliminn, hana Amelíu Ósk. Við gerðum margt skemmtilegt saman, lególand, tívolí, regnskógaferð ofl. Svo fórum við heim 11 mai og 12 mai komu m og p davíðs, amma hans og elvar og tryggvi og gistu eina nótt fyrir flug heim á ísland.

Fimmtudaginn eftir kom Edda systir og Gummi kærastinn hennar og áttum við mjög rólega og kósi helgi saman ásamt Kjartani sem kom frá Svíþjóð. Ekkert sma gott að fá stelpu til að tala við svona til tilbreytingar!

Öllum þessum gestum fylgdu endalausar gjafir sem voru vel þegnar!! Takk allir saman! Og svo auðvitað margar skemmtilegar samverustundir sem gáfu manni orku til að takast á við síðasta mánuðinn í skólanum;) Þó að það komi alltaf svona 2 til 3 dagar i söknuð og niðurtröppun eftir íslendingaheimsóknirnar.

 

En að öðru; allar einkunnir komnar og náði öllum þessum áföngum sem er mikill léttir;) og það þýðir að eg þarf ekki að vera lengur úti í sumar og get komið heim um 21 júni sirka.:haha:

 

Og já það er strákalaus helgi framundan hjá mér og Sonju þar sem mennirnir okkar hafa ákveðið að flýja land, okkur til nokkurar ánægju þar sem það er djamm í skólanum og við ætlum að njóta þess saman;) einsog lesa má í kommentinu hennar sonju í síðasta bloggi;)

 

Uff hvað eg nenni ekki meira núna, ætla að finna dvd að horfa á þar sem davíð er að glápa á fótbolta!


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 09:06:30 / Unnur

Á leid utá jotland

engar einkunnir komnar entá og ekki laust vid ad bidin se farin ad verda treytandi......

en vid david erum a leid uta jotland (rømø) i kvold og verdum fram a sunnudag i saudburdi.

heimsoknir eru a næsta leiti og um tarnæstu helgi erum vid aftur ad fara a jotland til ad hitta familiuna hans davids og nyjasta medliminn i leidinni;)
edda og gummi koma svo 15 mai og verda til 19 mai.
alltaf gaman ad fa heimsoknir;)

svo hefur fjolgad um einn a heimilinu hja okkur tvi omar kom i gær og verdur hja okkur næstu vikur;) David er yfir sig anægdur ad fa annan ad tala vid en mig;)

en ætla ad drattast i tima...

» 6 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 20:23:49 / Unnur

Sauðburður, skolinn og bilaviðskipti

uff það er svo margt búið að gerast síðan síðast...

en allavega; sunnudaginn eftir síðasta prófið tokum við sigrún lestina til Romo sem er eyja fyrir utan jótland og þar var ætlunin að hjálpa til við sauðburð sem við fengum svo sannarlega að gera; svolítið meira mál og vinna að vera með 1200 kindur en 100;)
Þarna bjó semsagt lítil fjölskylda, Viviann og Jhonny, hjón um þrítugt með tvö börn, line 3ja og Gustav tæplega einsárs. Konan kom ekki nálægt búinu á neinn hátt enda með 2 ung börn sem þarf að sinna þannig að bóndagreyið var aleinn í þessu öllusaman því hann finnur engann sem er vanur til að hjálpa sér. Hann hefur því ekki sofið mikið síasta mánuðinn og á ekki eftir að sofa mikið þann næsta en við gátum nu samt leyft honum að sofa smá þar sem við fengum hann til að treysta okkur fyrir því að taka næturvaktina.
Það er margt sem er öðruvísi í dönskum sauðburði og fjárrækt yfir höfuð en því sem þekkist á íslandi. Lömbin koma jú út á sama hátt og á íslandi og rollurnar éta það sama en annað er eiginlega allt öðruvísi.
Þarna hafa MJÖG fáar rollur horn þannig að það er svolítil kúnst að ná þeim... best er að skutla sér á annan afturfótinn á þeim og draga þær á honum þangað sem þær eiga að fara. Þessi aðferð gengur bara furðuvel miðað við hvað þetta hljómar og lítur kjánalega út.
Kindurnar hafa löng eyru (sem er hentugt þegar merkin fara í greyið lömbin) og langan hala, já eg segi hala því þetta flokkast held eg ekki undir dindil lengur....en allar tvílembings gimbrar eru halastífaðar um leið og þær eru merktar.
Þarna er hálmur sem þær ganga í (sem er reyndar í sumum fjárhúsum á isl líka) en ekki haughús og Jhonny varð mjög hissa á því að við hefðum ekki hálm. Hálmurinn er mjög hlýr og kindunum viðrist líða vel á honum en hefur þann stóra og mikla ókost að klaufarnar slítast ekki og það kemur sveppasýking í þær. Vegna þessa þarf að klaufklippa hverja EINUSTU rollu áður en þær fara út og það tekur sko tímann sinn!
Þarna á búinu voru 2 gerðir af rollum, ein sem kallast Texel og er hvít, kollót og vöðvastælt en hin tegundin er Shufflock sem er golsótt minni og MUN villtari og erfitt að ná. Bestu rollurnar eru samt mix á milli þessara tveggja tegunda var okkur sagt.
og já að lokum um þessa skemmtilegu ferð: skilaboð til mömmu frá Jhonny: pabbi á að fá sér fjórhjól!!! það er svo gaman og svo gott að smala á því, hestar eru bara bull.:lol:

en annars var húsið á bænum ofsalega kósí og flott en samt frá 1700 og eitthvað og fólkið enn betra (það var samt ekki frá 1700 og eitthvað) og konan var frábær kokkur og hugsaði sko vel um okkur og manninn sinn;)

En að öðru: skólinn er hafinn á ný, nu tekur við bakteriu fræði , sveppafræði og snýkjudýrafræði;)
einkunnirnar úr hinu eru ekki enn komnar.

Vondar fréttir: Það er búið að stela fáknum mínum!!!! Rocky var semsagt stolið þegar ég var á eyjunni góðu.........

Góðar fréttir: Davíð er´búinn að selja bílinn sinn!!!!!!JIBBÍ

nenni ekki meira núna

hefur trúlega ekki verið skemmtilegt blogg fyrir þá sem ekki nenna að lesa um kindur....

en það er komnar myndir inná myspace!
(mamma þú notar bara mitt lykilorð, held edda viti það)

» 15 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10